Ég byrjaði nýja árið á teppahekli. Er að taka þátt í verkefni sem nefnist Veðráttuteppi Handverkskúnstar 2016. Þar setur maður hitaskala, og velur liti fyrir hverja afmörkun, og heklar/prjónar eina umferð á dag með þeim lit sem tilheyrir hitastigi dagsins :)
Ferlega skemmtilegt verkefni :)
Ég setti skalann minn upp svona:
Er að gera þetta teppi að gjöf og tek því hitann í heimabæ þess sem á að fá það í jólagjöf í ár :)
Staðan eftir 17 daga. Garnið er Kartopu Basik frá Handverkskúnst með nál númer 4 |
Svo núna á föstudaginn byrjaði ég á öðru teppi, barnateppi fyrir litla frænku. Nota sama mynstur og að ofan en eigin litasamsetningu.
Ætla að láta barnateppið ganga fyrir og vinna hitt upp þegar það er búið :)
Ætla að láta barnateppið ganga fyrir og vinna hitt upp þegar það er búið :)
Staðan í kvöld 24. jan. Garnið er Vital Hjertagarn frá Álafoss með nál númer 3,75. |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli