miðvikudagur, 22. apríl 2015

Miðvikudagur


Ekki er montið svosem merkilegt, en spor er spor :)

Kláraði þennan borða......


föstudagur, 17. apríl 2015

Þráðaklippur til sölu


Klippurnar eru komnar ;)
Á til gular, rauðar, bláar og bleikar :)

500 kr stykkið + 200 kr í póstkostnað :)

Sendu mér póst af síðunni eða skilaboð á Facebook :)

fimmtudagur, 16. apríl 2015

Útsaumsnálar til sölu


Er með slatta af svona útsaumsnálum til sölu.
Þær er númer #24 sem er fínt fyrir 11-14 ct af aida.
Með gylltum haus og eru 3,6 cm langar.

Seljast á 10 kr stykkið + 200 kr í kostnað ef sent er :)

Um að gera að byrgja sig upp, þær eru mjög fínar, sterkt í þeim :)



miðvikudagur, 15. apríl 2015

Miðvikudagsmont


Ég kláraði brúðkaupsmyndina fyrir frænda og frænku í vikunni,
mjög ánægð með hana :)
Var að vesenast með þegar ég var að merkja hana hvort nafnið ég ætti að setja á undan, hef heyrt að konan sé fyrst.  En þegar þau eru nefnd, þá er hann alltaf nefndur fyrstur, það hljómar vel þannig og þannig fór það á myndina :)  Sýni ekki samt fyrr en þau eru búin að fá þær, þeas þessa og skómyndirnar sem ég er búin að setja inn :)

Vervaco 95.514

Svo byrjaði ég í gær á handklæðaborðunum fyrir systurson minn, hann er að byrja í skóla í haust og ég ætla að herma eftir Höllu frænku, hún gaf strákunum mínum merkt handklæði og ég vil gera eins fyrir þennan monsa :)
Mun gera 2 borða, einn í þessum lit bara með nafninu, og svo annan í öðrum lit  með fígúrum á líka :)

Stafrófið er úr bókinni It's a baby teddy eftir Dale Burdett


Byrjun á Jakob Jóel.
DMC 3846

sunnudagur, 12. apríl 2015

USA undirbúningur




Ég er að fara til USA í desember og er farin að plana og plotta.....langar svo að kíkja í alvöru handavinnubúðir :)
Verð í Silver Spring í Maryland.  Var bent á þessar:

In Stitches ca klst frá
8800 Pear Tree Village Ct, Alexandria, VA 22309
The Stitching Post ca 40 mín frá.
67 Mellor Avenue, Catonsville, MD 21228
Michaels ca 10 mín frá
13850 Georgia Ave, Silver Spring, MD 20906
A.C. Moore ca 15 mín frá
12013 Rockville Pike, Rockville, MD 20852
Joann's ca 15 mín frá og 25 mín frá
11160 Veirs Mill Road, Unit 180, Wheaton, MD 20902
6200 Greenbelt Road, Greenbelt, MD 20770
Hobby Lobby ca 25 mín frá
9031 Snowden Square Drive, Columbia, MD 21046

Varð að skrá þetta hérna svona til að ég gleymi því ekki :)
Verð að fá mér fílabók eins og Halla frænka á :)

miðvikudagur, 8. apríl 2015

Mont miðvikudagur

...og fyrra montið er af syni mínum, Viktori Óla.  Hann er búinn að bíða eftir að fá að sauma eins og mamma og í gær kom að því :)  Keyptum þessa fínu mynd fyrir páska og með henni fylgdi loforð um að þegar ég kæmist í vinnufrí þá myndum við sauma saman.....


Hitt  er svo brúðkaupsmyndin sem ég er að sauma fyrir frænda og frænku.....
Stefni á að klára hana fyrir næsta montdag :)

Komin smá mynd á hana :)



fimmtudagur, 2. apríl 2015

Ekkert saumað....

...það er búið að vera nóg að gera í vinnunni sl viku þannig að ég hef ekkert saumað af ráði, amk ekki til að monta mig af ;)

Ég pantaði slatta af svona þráðaklippum í gær.....ég hef keypt svona í London og nota þær mikið:
Mun selja þær þegar þær koma....hafðu samband ef þú vilt :)

Pantaði líka helllllling af nálum......ég nota margar nálar í einu með verkefni þannig að ég sé ekki alltaf að skipta, finnst það mikið betra og sparar tíma :)