sunnudagur, 24. maí 2015

Búin með myndina !

Þetta tók ekki langan tíma :)  Halla frænka segir að ég sé saumavél, kannski er pínu ogguponsu til í því stundum :)


Ég tók fyrstu sporin á þessari mynd þriðjudaginn 19. maí.  Fyrri myndin er tekin kl 19:48 þann 20. maí.
Ég saumaði ekkert þann 21., og nú er 24. og hún er búin fyrir utan að merkja hana brúðhjónunum :) :)
Litamunurinn felst bara í mismunandi lýsingu ;)

Vervaco 45.158


ELSKA sepia myndirnar frá Vervaco :)
Þessi er 4666 spor + afturstingur í nöfnum

miðvikudagur, 20. maí 2015

Langt síðan síðast :)

Næstum mánuður frá síðasta bloggi....og næstum jafn langt síðan ég saumaði :/  Datt pínu úr gírnum, er samt næstum búin með seinni handklæðaborðann hans Jakobs Jóels en þar sem liggur ekki á honum ákvað ég að skella í eina brúðkaupsgjöf.  Annað en Vervaco kom ekki til greina ;)
Upphafsdagur 19. maí
Alltaf jafn gaman að sauma sepia mynd frá Vervaco :)  Það var líklegast aðalhvatinn í að ég pantaði mér þessa mynd í gær

Hlakka til þegar hún kemur svo ég geti klappað henni :)